Aðalsíða » Tveggja þátta auðkenning

Tveggja þátta auðkenning

Í upphafi nýs skólaárs, haustið 2024, mun innskráning í vefkerfi Skólapúlsins / Vísra rannsókna notast við tveggja þátta auðkenningu í stað rafrænna skilríkja. Þetta er tilkomið vegna breytts aðgengis að Stafrænu Íslandi.

Allir notendur verða að setja upp auðkenningarsmáforrit (app) í snjallsíma til að skrá sig inn í kerfið fyrir 1. september n.k.

Þessi breyting er einföld í uppsetningu og tekur örfáar mínútur. Hægt er að virkja tveggja þátta auðkenningu hvernær sem er, og hvetjum við ykkur til að huga að því fyrr en síðar.

Leiðbeiningar fyrir uppsetningu og notkun:

Þegar notendur hafa virkjað tveggja þátta auðkenningu inni á vefsvæði Skólapúlsins þurfa þeir framvegis að skrá sig inn með því að setja inn tölvupóst, lykilorð og 6 tölustafi sem sóttir eru í auðkenningarsmáforritið.

Þeir notendur, sem enn muna sitt gamla lykilorð fyrir Skólapúlsinn, geta notað það áfram. Þeir sem hafa gleymt því og þeir sem einungis hafa notað rafræn skilríki við innskráningu geta óskað eftir lykilorði á innskráningarsíðunni skolapulsinn.is með því að smella á „Nýtt lykilorð“.

Hægt er að nota ýmis auðkennissmáforrit í snjallsíma, en fyrir þá sem ekki nota slík smáforrit nú þegar eru ítarlegar leiðbeiningar um hvernig þau eru sótt hér að neðan. Þetta þarf einungis að gera einu sinni. Athugið að íslenska Auðkenningarappið er EKKI hægt að nota í þessum tilgangi.

Leiðbeiningar – veljið það sem við á:

  • Til að setja upp auðkennissmáforrit í Iphone síma, smelltu hér.
  • Til að setja upp auðkennissmáforrit í Android síma, smelltu hér.

  • Ef þú hefur þegar sett upp auðkennissmáforrit í Iphone síma, smelltu hér.
  • Ef þú hefur þegar sett upp auðkennissmáforrit í Android síma, smelltu hér.